Endir

Monday, December 13th, 2010

Kæru lesendur

Þessi strípa er númer 663 í röðinni og sú síðasta frá okkur.

Frá ágústbyrjun 2005 höfum við gefið út strípur þrisvar í viku með pásum inn á milli. Á þeim tíma hefur ýmislegt gengið á, þ.á.m. strípur birst í dagblöðum, greinar um Arthúr í dagblöðum og tímaritum og Arthúr bók gefin út.

En nú er svo komið að við höfum ekki tíma fyrir þetta lengur og viljum einbeita okkur að öðru. Þið hafið þó vonandi ekki heyrt það síðasta frá okkur.

Við þökkum kærlega fyrir lesturinn í gegnum árin. Síðan verður áfram opin öllum sem vilja lesa gamlar strípur.

Kv.
Finnur Torfi Gunnarsson
Jónas Reynir Gunnarsson

WordPress database error: [Table 'fjandinn.wp_comments' doesn't exist]
SELECT * FROM wp_comments WHERE comment_post_ID = '679' AND comment_approved = '1' ORDER BY comment_date

Skrifaðu athugasemd