Kæri lesandi

Tom Waits sagði eitt sinn; “Því hærra sem apinn klifrar, því meira sýnir hann á sér skottið”. Það sama á við um samstarf Fjandans manna. Við klífum framfarastigann í tómu óðagoti í þeim tilgangi að sýna okkar bestu hliðar. Hvort það verður einfaldlega rassgatið á okkur sem ber við himinn eða metnaðarfull sköpunarverk, kemur í ljós með tíð og tíma.

En einhversstaðar verða vondir að vera, og hér ætlum við að sitja sem fastast, fullvissir í okkar sök að snilldin mun drjúpa af hverjum staf og dýrðin sem umlykur sköpunina mun springa í meyjarhreinni birtu sannleika og dugnaðar.

Þessi birta mun lýsa öðrum á sömu braut, sem ef til vill klöngrast um harðsnúinn frumskóginn, og beina þeim á betri farveg. Farveg sem inniheldur, harðsnúin ritverk, beinskeittar myndasögur, kátínu, og drukkin gamalmenni.

Þetta er stundin sem andsetin börn í gömlu Sódómu spáðu fyrir um. Þetta er andartakið sem lýðurinn hefur beðið eftir að gleypa niður í maga. Þetta er stund bræðrabyltu, þetta er stund úlfa og hungurs, þetta er stund áhugamanna um lélegt veggjakrot og ódýrt klám. Þetta er stundin okkar.

Hvern er ég að plata? Velkomin á Fjandann.


Comments

Name (required)

Email (required)

Website

Speak your mind