March 22, 2009 |






Kæri lesandi

Í kvöld sit ég undir hljóðum grínarans Mark Watson í leikhúsi Winchester. Hann hef ég aldrei séð eða heyrt um áður, en fann mig þvingaðan til að punga út rúmum tvöþúsundkrónum til að styðja þetta uppátæki hans. Hann er útlendingur eftir allt saman. Ef þú ert að svitna úr forvitni þá geturðu séð hann hér:


Mark Watson Sprellarason.

Ég hef tekið eftir því að það virðist vera að ganga yfir einhverskonar “vina þrautaganga”. Svolítið eins og þrautaganga krists niður á höfn, að finna týndu örkina. Því hann komst jú að því hverjir voru raunverulegir vinir hans (pottþétt ekki gyðingar ef eitthvað má marka hryllingsmyndir á borð við Jesus Christ Superstar). Þennan ‘vinamæli’ er að finna hér. Með honum geturðu hafið páskana snemma, komið upp um falska vini og sett ómælda pressu á þína heittelskuðu. Bara ef Jesú hefði sett þetta próf fyrir Júdas.

Hversu mikils virði telur þú vináttu okkar?
A: Eins verðmæta og Pétur heldur að hún sé [  ]
B: Einskis virði [  ]
C: 30 silfurpeninga [ X ]
D: Var aðeins vinur þinn til að komast nær Maríu Magdalenu. [  ]

- Hjálmar Kakali Baldursson


Comments

Name (required)

Email (required)

Website

Speak your mind