March 23, 2009 |






Kæri lesandi

Andi taumlausrar gleði sveif yfir vötnum Mark Watson í gærkvöldi, en þeir svifu ekki betur en svo að ég fékk einn í augað og eyddi þeim klukkutíma sem hann var uppá sviði, hrópandi úr sársauka og veifandi útlimum mínum í allar áttir.

Svo sannarlega ekki eftirminnilegt kvöld hlátursins vegna. Ég verð því að gefa honum einkunnina, “Hjalliz thinks you is a sucka ph00l! (ísl: Gettu Betur).
-
Ef það er eitthvað sem ég hef lært á nánast þriggja ára dvöl minni í Englandi, þá er það að standa í biðröð. Það sem liggur í eðli biðraða m.a. er að ef þú stígur úr röðinni hefurðu gefið upp staðinn og getur ekki snúið til baka nema þú skiljir eftir vini til að gæta staðarins. Helst vopnaða. Þetta gerir fólki erfitt fyrir ef því er mál að míga.

Lausnin er einföld, þú einfaldlega pissar í vasa manneskjunnar* fyrir framan þig. Þar af leiðandi hefurðu létt af þér og losað þig við afköstin. Þessi lausn gæti orðið heldur flóknari ef þú ert kvenkyns.

*Virkar ekki á gæludýr.

- Hjálmar Kakali Baldursson


Comments

Name (required)

Email (required)

Website

Speak your mind