March 31, 2009 |






Kæri lesandi

Nýlega átti undirritaður afmæli. Sá dagur kann að vera mikilvægur fyrir einhvern sem er hundeltur af mannætum, en fyrir einhvern eins og mig sem bý í svokölluðu siðmenntuðu samfélagi, er þessi dagur gjörsamlega gagnslaus. Einhverra hluta vegna vekur þessi dagur athygli annarra og vekur það undrun margra að ekkert sé gert við þennan afleita fæðingardag.

Ég lét þó undan þrýstingi samfélagsins og gerði mér dag í Brighton þar sem gríðar sterkir vindar blésu úr mér allt hor og litlu mátti muna að ég yrði úti í ofsanum.* En þrátt fyrir allt virtist ég hafa skemmt mér vel, sögðu viðstaddir.

Sagan segir að ég hafi endað á hótel herbergi og farið í bað með bjór og regnhlíf til að verjast vætunni. Sjaldan átt jafn eftirminnilegan afmælisdag. Er mér sagt.

*Ég er stórlega að ýkja.

- Hjálmar Kakali Baldursson


Comments

Name (required)

Email (required)

Website

Speak your mind