April 28, 2009 | 2 Comments

Kæri lesandi
Ef það er eitthvað í þessum dúllulega heimi sem fær mig til þess að hlaupa út í vindinn nakinn á meðan ég þeyti vindmillum út í loftið, þá eru það fréttir. Nánar tiltekið góðar fréttir, sérstaklega þegar þær bera í för með sér nafnið PJ Harvey. Nýja platan hennar og samstarfsaðila hennar John Parish; [...]

April 18, 2009 | 3 Comments

Kæri lesandi
Í dag fjárfesti ég í nýjum sól gleraugum. Ég segi nýjum því þau eru ný fyrir mér, en eru ansi gömul ef litið er yfir heildina. Miðað við útlitið á þeim get ég ímyndað mér að eldri herramaður hafi átt þau til að byrja með. Einn af þessum eldri herramönnum sem sitja óþarflega mikið [...]

April 7, 2009 | Leave a Comment

Kæri lesandi
Inni á bókasafni skólans var ég sleginn slíku afdráttarlausu garnargauli að tíminn virtist standa í stað. Algjör þögn ríkti á bókasafninu eins og við er að búast og fór eftirfarandi í gegnum höfuðið á mér á meðan árásinni stóð:
- Shit hvað þetta er hátt.
- Kannski hættir þetta ef ég sýg magann inn.
- Nei.
- Hvað [...]

April 3, 2009 | 1 Comment

Kæri lesandi
Þessi mynd var tekin fyrir næstum tvemur árum.
Það sem er merkilegt við hana er ekki að ég, fullvaxta karlmaður er klæddur í nunnubúning, að þykjast vera mörgæs. Eða að sígauni hafi í hótunum við mig.
Heldur finnst mér ansi merkilegt að ég á nú sama jakka og þessi sígauni. Ansi vel klæddur sígauni, verð ég [...]

April 2, 2009 | 1 Comment

Kæri lesandi
Kæra dagbók,
í dag hefur það verið mér óbærilegt að sitja kyrr. Ekki vegna þess hve ljúft veðrið er og ég einfaldlega verð að taka göngutúr. Ekki vegna þess að ég er hlusta á dynjandi taktfasta tónlist sem fær mig til að dansa. Og ekki vegna þess að lukkudýr skólans slapp og át handfylli af [...]

April 1, 2009 | 1 Comment

Kæri lesandi
Ef það er eitthvað sem mér leiðist meira en leiðinlegt fólk, þá er það leiðinlegt fólk sem smjattar leiðinlega hátt og kyngir hærra.
Verð að skipta um gleðikonu.
- Hjálmar Kakali Baldursson