Jun
22
Kjökur
June 22, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Nóttina sem leið varð ég var við það að ég gaf frá mér einkennileg hljóð og kjökur sem að aldrei eiga sér stað vegna þrjóskrar karlmennsku. Ég vakti sjálfan mig við þessi óhljóð, sem ég virðist hafa verið að framleiða en aðeins í brot úr sekúndu því ég sofnaði strax aftur og steingleymdi næstum [...]
Jun
17
Kæri lesandi
Hér er tæmandi listi yfir hluti, atburði eða hegðun sem gefur mér blóðnasir úr bræði:
1: Bankastarfsmenn sem vísa mér til annars bankastarfsmanns sem síðan vísar mér til baka til upprunalegs bankastarfsmanns.
2: Hægfara vegfarendur (Nánast allir sem verða á vegi mínum þegar ég legg mjaðmirnar í hraðröltið mitt).
3. Ummálsmiklir vegfarendur sem stífla gangstéttir (land baujur, [...]
May
6
May 6, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Þú hefur væntanlega heyrt um að yfirnáttúrulegir atburðir eigi sér stað í raftækjum hverskonar? Sjónvörp og tölvur hafa orðið fyrir barðinu á ofsafullum afturgöngum sem fengu ekki nóg af facebook eða friends í lifanda lífi og ljós slökkt og kveikt í trylltum takti eins og um óþolandi krakka væri að ræða. Persónulega hef ég [...]
Apr
28
April 28, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Ef það er eitthvað í þessum dúllulega heimi sem fær mig til þess að hlaupa út í vindinn nakinn á meðan ég þeyti vindmillum út í loftið, þá eru það fréttir. Nánar tiltekið góðar fréttir, sérstaklega þegar þær bera í för með sér nafnið PJ Harvey. Nýja platan hennar og samstarfsaðila hennar John Parish; [...]
Apr
18
April 18, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Í dag fjárfesti ég í nýjum sól gleraugum. Ég segi nýjum því þau eru ný fyrir mér, en eru ansi gömul ef litið er yfir heildina. Miðað við útlitið á þeim get ég ímyndað mér að eldri herramaður hafi átt þau til að byrja með. Einn af þessum eldri herramönnum sem sitja óþarflega mikið [...]
Apr
7
April 7, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Inni á bókasafni skólans var ég sleginn slíku afdráttarlausu garnargauli að tíminn virtist standa í stað. Algjör þögn ríkti á bókasafninu eins og við er að búast og fór eftirfarandi í gegnum höfuðið á mér á meðan árásinni stóð:
- Shit hvað þetta er hátt.
- Kannski hættir þetta ef ég sýg magann inn.
- Nei.
- Hvað [...]
Apr
3
April 3, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Þessi mynd var tekin fyrir næstum tvemur árum.
Það sem er merkilegt við hana er ekki að ég, fullvaxta karlmaður er klæddur í nunnubúning, að þykjast vera mörgæs. Eða að sígauni hafi í hótunum við mig.
Heldur finnst mér ansi merkilegt að ég á nú sama jakka og þessi sígauni. Ansi vel klæddur sígauni, verð ég [...]
Apr
2
April 2, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Kæra dagbók,
í dag hefur það verið mér óbærilegt að sitja kyrr. Ekki vegna þess hve ljúft veðrið er og ég einfaldlega verð að taka göngutúr. Ekki vegna þess að ég er hlusta á dynjandi taktfasta tónlist sem fær mig til að dansa. Og ekki vegna þess að lukkudýr skólans slapp og át handfylli af [...]
Apr
1
April 1, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Ef það er eitthvað sem mér leiðist meira en leiðinlegt fólk, þá er það leiðinlegt fólk sem smjattar leiðinlega hátt og kyngir hærra.
Verð að skipta um gleðikonu.
- Hjálmar Kakali Baldursson
Mar
31
March 31, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Nýlega átti undirritaður afmæli. Sá dagur kann að vera mikilvægur fyrir einhvern sem er hundeltur af mannætum, en fyrir einhvern eins og mig sem bý í svokölluðu siðmenntuðu samfélagi, er þessi dagur gjörsamlega gagnslaus. Einhverra hluta vegna vekur þessi dagur athygli annarra og vekur það undrun margra að ekkert sé gert við þennan afleita [...]
