Mar
23
March 23, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Andi taumlausrar gleði sveif yfir vötnum Mark Watson í gærkvöldi, en þeir svifu ekki betur en svo að ég fékk einn í augað og eyddi þeim klukkutíma sem hann var uppá sviði, hrópandi úr sársauka og veifandi útlimum mínum í allar áttir.
Svo sannarlega ekki eftirminnilegt kvöld hlátursins vegna. Ég verð því að gefa honum [...]
Mar
22
March 22, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Í kvöld sit ég undir hljóðum grínarans Mark Watson í leikhúsi Winchester. Hann hef ég aldrei séð eða heyrt um áður, en fann mig þvingaðan til að punga út rúmum tvöþúsundkrónum til að styðja þetta uppátæki hans. Hann er útlendingur eftir allt saman. Ef þú ert að svitna úr forvitni þá geturðu séð hann [...]
Mar
21
March 21, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Það gengur plága yfir Bretlandseyjar, ekki ósvipað því þegar svarti dauði hljóp spretthlaup um mestalla evrópu. Sem meðal annars olli því að konur þurftu að hlaupa í skarðið fyrir verkamenn, sem ef til vill sýndi þá loksins að þær eru ekki bara hárlaus spendýr.
EN, þessi plága herjar einmitt nánast einungis á kvenfólk og veldur [...]
Mar
18
March 18, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Í dag álít ég mig kjána yfir öllum þeim áhyggjum sem hafa valdið mér ýmsum garnakvillum undanfarið. Ég man varla hvað það var sem plagaði allar hinar áhyggjurnar sem samsettar mynda huga minn. Áður fyrr myndu þeir segja að ég greindist með ‘Generalized Anxiety Disorder’ (isl: Skrambans Ólag) en í dag myndu þeir bara [...]
Feb
23
Framtíðin.
February 23, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Ef ég hefði vitað fyrir 8 árum síðan hversu mikið stress fylgir því að ljúka BA gráðu í listfræði, hefði ég eflaust snúið mér hina leiðina og hlaupið eins hratt og mannslíkami ræður við.
En, þar sem við erum að tala um minn manns líkama, hefði ég fallið saman eins og svefnvana svarthol þegar ég [...]
Feb
19
Að eiga að í húsi hjá stelpum.
February 19, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Hingað til hef ég verið afar heppinn hvað varðar húsnæði hérna í útlandinu, því ég hef yfirleitt verið eini karlkyns meðlimur hússins sem lofar góðu fyrir hreinlæti. Kallið mig karlrembusvín og ég græt í viku á eftir*, en sannleikurinn er sá að hreinlæti eltir flesta þá sem eiga aðild að andstæða kyninu.
Nema í þessu [...]
Feb
1
Mannasiðir
February 1, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Af og til, rétti ég út hönd manngæsku og vinskapnaðar. Í þetta sinn fálmaði ég mig í áttina að meðleigjenda mínum, en ég bar fyrir hana spurninguna hvað ylli því að brauðristin setti brunavarnarkerfið í gang. Með tilheyrandi hávaða. Jafnframt tilkynnti ég kenningu mína að brunavarnarkerfið væri næmt fyrir hitanum sem brauðristin gæfi frá [...]
Jan
7
Einhversstaðar verða vondir að vera.
January 7, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Tom Waits sagði eitt sinn; “Því hærra sem apinn klifrar, því meira sýnir hann á sér skottið”. Það sama á við um samstarf Fjandans manna. Við klífum framfarastigann í tómu óðagoti í þeim tilgangi að sýna okkar bestu hliðar. Hvort það verður einfaldlega rassgatið á okkur sem ber við himinn eða metnaðarfull sköpunarverk, kemur [...]
