Fyndni
Fólk stöðvar mig oft út á götu og spyr mig: „Jónas, hvernig á maður að vera fyndinn?“ eða „Get ég verið fyndinn líka?“ eða „Hvað er að vera fyndinn?“. Svarið við öllum þessum spurningum er „Já.“
Að vera fyndinn er jafn auðvelt og að fara í splitt. Fyrst er mikilvægt að greina í sundur venjulegt fólk og fyndið fólk og sýn þessara gjörólíku hópa á samfélagið. Tökum sem dæmi að lítið barn myndi ganga upp að manni í búð og segja: „Ég finn ekki mömmu mína.“ Venjuleg manneskja myndi ekki sjá neitt fyndið við þessar aðstæður og hjálpa barninu. Fyndin manneskja myndi sjá að þetta eru kjöraðstæður til þess að vera fyndinn og gæti sagt við barnið eitthvað á þessa leið: „Hún skildi þig eftir því þú pissar alltaf á þig“ eða „Ég er nýja mamma þín, komum okkur nú heim“ eða „Það keyrði einhver á hana hérna fyrir utan, hún virðist vera mjög slösuð.“
Þessi sprenghlægilega sýn okkar fyndna fólksins á lífið gerir okkur kleift að auðga líf okkar og líf annarra til muna. Við elskum gleði meira en allt, annað en venjulega fólkið sem elskar hluti eins og skjalatöskur, heftara og ýsu.
Til að sorglega venjulegt fólk geti orðið fyndið verður það að snúa sjónarhorni sínu á raunveruleikann um nokkrar gráður og líta á fyndnu hliðina á hlutunum. Að sjá ekki bara lampaskerm sem lampaskerm heldur einnig sem fyndinn hatt. Fátt er meira viðeigandi í matarboði hjá vinum heldur en að láta hversdagslega hluti á höfuðið á sér og láta sem þeir séu hattur. Það er líka hægt að vera fyndinn án þess að hreyfa neitt annað heldur en talfærin. Eitt lítið lag í útvarpinu getur vakið upp skopskynið hjá mörgum og þá er fátt fyndnara en að breyta lagatextum á sprenghlægilegan hátt. „Takið af ykkur skóna – hvað ert’að bóna?“ gæti orðið „Stál og hnífur er merkið mitt.“
Þetta eru aðeins örfá dæmi af þeim fjölmörgu möguleikum sem eru í boði fyrir fólk sem er orðið þreytt á að vekja engar tilfinningar hjá öðru fólki heldur en alvarleika og áminningu á hversu leiðinlegur heimurinn getur orðið. Okkur er ætlað að hlæja. Ef að við höfum ekki nægan tíma til að þjálfa hæfileika okkar til að fá annað fólk til að gleðjast þá er líkaminn byggður með varakerfi. Það er hægt að kitla fólk líka.
