Handrukkari í einn dag: Skýrsla.



Gulli rjómi:
Kom inn til hans þar sem hann var að elda morgunmat með 5 ára syni sínum. Ég benti honum á að senda krakkann í annað herbergi þar sem ég þyrfti að ræða við hann. Á leiðinni út sparkaði strákurinn, sem greinilega æfir fótbolta, í klofið á mér. Þegar ég hneig niður lamdi faðirinn mig í hausinn með pönnu þangað til hún þoldi ekki meira. Borgaði ekki en teflonið á pönnunni var gjörsamlega ónýtt.

Tinni bomba:
Keyrði fyrir mistök yfir þríhjól dóttur hans, en ákvað að snúa því mér í hag. Sagði honum að ef hann vildi að fjölskylda sín væri örugg ætti hann að borga sem fyrst. Gekk vel þangað til hann tók fram nýja sandjárnið sitt og gerði þessi 5 ár sem ég notaði spangir sem unglingur að engu. Hann undirstrikaði hvað hann er með góða sveiflu með því að skjóta golfkúlum á eftir mér þegar ég hljóp í burtu.

Siggi sprey:
Gekk inn á verkstæðið til hans þar sem hann var að saga með keðjusög. Ákvað að hætta við og koma aftur á morgun, en hann kom auga á mig.  Ég þóttist vera að selja tímaritaáskriftir en hann trúði mér ekki heldur klemmdi höfuðið á mér í skrúfstykki og fyllti lungun mín af sagi.

Teitur mjói:
Heimsótti hann á togarann sinn og las yfir honum pistilinn. Á þriðju setningu tóku hann og vinir hans um ökklana á mér og dýfðu mér nokkrum sinnum í sjóinn í nokkrar mínútur í senn. Fjölskylda í sunnudagsbíltúr stoppaði og krakkarnir fengu að fara um borð í bátinn. Þau tóku myndir af sér með sjómönnunum og fótunum á mér.

Valdi hass:
Byrjaði strax að þjarma að honum og gefa í skyn ofbeldi. Áður en ég gat klárað hótunina var hann með mig í haustaki og kærastan hans brjótandi viðarplanka á bakinu á mér. Segist ekki geta borgað skuldina en samt eru þau greinilega að uppfæra eldhúsið.

Jón Sigdal:
Náði einu góðu höggi á hann áður en hann byrjaði að misþyrma beinunum á mér með skrúfulykli á stærð við folald. Flúði þegar ég hafði tækifæri en hann elti mig uppi og hélt áfram. Líkamlegt atgervi hans er út í hött miðað við 73 ára gamlan mann.

Viggi bílstjóri:
Fann strætóbifreiðina sem hann keyrir og hótaði honum barsmíðum meðan hann var enn undir stýri. Hann varð mjög reiður við mig og neitaði að hleypa mér út, sama hversu oft ég dinglaði bjöllunni. Var með honum í strætónum þangað til hann lagði á endastöðinni þar sem fimm vinir hans biðu eftir okkur. Hótuðu að drepa mig nema ég rændi fyrir þá pylsubás, sem reyndist vera óvenju vel vopnaður miðað við sambærilega staði. Endaði á því að stökkva til sunds fram af bryggju með nokkur högl í bakhlutanum.

Stulli kokkur:
Mætti á veitingastaðinn hans og pantaði mér dýrasta réttinn á matseðlinum. Þegar mér var afhentur reikningurinn skilaði ég honum og sagðist ætla að borða þarna ókeypis þangað til yfirmaðurinn borgaði skuldina sína. Stuttu síðar voru tveir fjallvaxnir kokkar að henda mér ofan í píanó sem var vanalega ætlað til að veita gestunum skemmtun meðan þeir snæða. Það klikkaði reyndar ekki í þetta skiptið því að salurinn glumdi af lófataki þegar hljóðfærið lokaðist á vélindað mitt. Ég yfirgaf staðinn stuttu síðar út um glugga með höfuðið á undan mér.

Rúnar bóndi:
Ég var rétt búinn að lýsa tilgangi heimsóknarinnar þegar hann var farinn að elta mig yfir tún með haglabyssu í hendinni og óðan hund á eftir sér. Ég náði loks að róa hann og tala hann af því að skjóta mig, en í staðinn batt hann um ökklana á mér við geðstirða belju sem dró mig niður á þjóðveg á hraða sem hefði verið saknæmur innanbæjar. Þegar ég kom að bílnum mínum var Jón að moka lífrænum áburði inn í hann af miklum krafti.

Steini í Sorpu:
Kom aftan að honum og lamdi í höfuðið með borðfæti sem ég fann á svæðinu. Þegar hann lá sá ég að ég hafði ráðist á rangan mann. Í þann mund sem ég áttaði mig á því fékk ég högg í hnakkann frá réttu fórnarlambi mínu. Ég var ekki jafn fljótur að jafna mig á höfuðhögginu eins og þessi sem ég barði, en hann stóð upp og sparkaði í magann á mér. Þeir reyndu að henda mér ofan í ruslagám en ég náði að sleppa. Í öllum æsingnum við að flýta mér út tók ég ranga beygju og féll niður tvo metra í annan ruslagám, þar sem naglar götuðu húð mína.

Séra Jóhann:
Talaði við hann eftir guðsþjónustu. Hann hörfaði fyrstu tilraun mína til höggs og skvetti vígðu vatni í augun á mér. Áður en ég hafði áttað mig á hvað hafði gerst var hann að kyrkja mig með krosshálsmeni. Því næst lét hann kirkjuklukku síga ofan á mig og barði í hana með biblíu þannig að það glumdi í hausnum á mér það sem eftir var dagsins. Ákvað að láta þetta gott heita og halda heim á leið.

Strákfíflið:
Kom heim og sá að stjúpsonur minn var ekki búinn að ryksuga stofugólfið eins og ég bað hann um. Sagði honum að ef hann vildi horfa á sjónvarpið síðar um kvöldið skyldi hann hlýða mér. Stuttu síðar voru hann og systkini hans búin að binda mig niður og veita mér meðferð sem Gúllíver hefði blöskrað við. Húshjálpin kom loksins heim og losaði mig úr prísundinni. Læsti mig inn í herbergi og breiddi sængina upp yfir haus.