Hugmyndirnar mínar
Sem ungur og upprennandi rithöfundur, skáld og áhugadansari bý ég yfir mörgum hugmyndum sem ég á erfitt með að koma frá mér (breyta í peninga). Í staðinn fyrir að nöldra persónulega í útgefendum eða senda póst út um allar trissur hef ég ákveðið að birta hér þrjár af þeim aragrúa hugmynda sem ég hef fengið í gegnum tíðina. Það er von mín að bóka- og blaðaútgefendur veiti þessu athygli, því alltof fáar bækur og ritverk eru gefin út á Íslandi og það sem ég hef fram að færa er kjörið í hvers kyns sölu á orðum á blaði. Eftirfarandi hugmyndir eru aðeins toppurinn á þeim borgarísjaka af ritverkum sem ég bý yfir. (til útgefanda: ath. gott vald á myndlíkingum)
Hugmynd að bók: Drengur fer í sveit til ömmu sinnar og afa. Hann kemst að því að þau eru bæði mannætur. Hann er skelkaður fyrst en nær loks að vinna á fordómum sínum gagnvart sveitafólki og tekur upp siði þeirra. (góður boðskapur, barnabók?)
Hugmynd að kvikmyndahandriti: Foreldrar vakna einn morguninn og komast að því að nýfætt barn þeirra talar fullkomna rússnesku. Gleði og forvitni fólksins í þorpinu breytist fljótt í hræðslu þegar smábarnið stofnar bandalag sem leiðir til byltingu og umbreytingu atvinnulífsins. (hugsanlega of pólitískt, lausn = skipta barninu út fyrir hund, rússneskunni fyrir gelt og forvitni þorpsbúa fyrir áhugaleysi)
Hugmynd að smásögu: Maður rekur tánna í þröskuld. Þegar hann er að öskra blótsyrði og bölva eins hátt og hann getur segir hann fyrir slysni tilgang lífsins. Truflaður af sársauka man maðurinn ekki hvað hann sagði, en þó að það tengist eitthvað kambeðlum. (mögulega er hægt að hafa söguna þannig að maðurinn man tilgang lífsins, ef svo er = ath. með hærri laun fyrir verkið)
