![]() |
| Eflaust hafa margir hugsað: "Hvar fékk þetta hörkutól svona karlmannlegt ör?" Ég skal segja ykkur það að áður en ég fékk þetta ör var ég góður í stærðfræði, stundaði íþróttir og át hollan mat. Einu sinni fannst mér mjög gaman á snjóbretti. Mér fannst það svo gaman að þótt að það væri lítill sem enginn snjór einn veturinn, fór ég með fjölskyldu minni út í land og fann stutta, bratta brekku sem snjór var í. Ég brá á það ráð að gera stökkpall neðst í brekkunni og renna mér niður. Það tókst ekki betur en svo að ég datt fram fyrir mig og lenti með brettið í hausnum (sveigði líkamann semsagt aftur) á einhvern fáránlegan hátt. Ég var fluttur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum og saumuð voru 3 spor að mig minnir. |
![]() |
| Já lesendur góðir, þið hélduð kannski að ég væri ekki hörkutól, en eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan hlæ ég að svona smámunum. Ég veit reyndar ekki af hverju pabbi var að taka mynd af þessu. Kannski ekki besta Kodak-moment sem hægt er að hugsa sér. |